- Saffransrisotto
- 1 1/2 líter vatn
- 1 teningur grænmetiskraftur
- 1 dl hvítvín
- 1 stk laukur
- 75 g smjör
- 6 dl arborio hrísgrjón
- nokkrir saffran þræðir (má nota turmeric krydd í staðinn ¼ tsk )
- 2 dl rifinn parmesanostur
- salt og pipar
- Myntujógúrt
- 2 dl jógúrt
- 1 stk hvítlauksrif
- 2 msk söxuð fersk mynta (má vera þurrkuð)
- 1 msk hunang
- Salt og pipar
Aðferð:
Setjið vatn í pott ásamt grænmetistening og hvítvíni og látið suðu koma upp, stillið hita á lægstu stillingu.
Fínsaxið lauk og setjið í pott með smjöri ásamt saffran og hrísgrjónum og létt steikið saman. Hellið grænmetisog hvítvínsoði saman við hrísgrjónin en samt einungis ca. 1 dl í einu og hrærið vel í á milli þetta tekur ca.20-25 mín. Hrísgrjónin skulu vera vökvalaus og límast vel saman
Blandið hráefni sem fara skal í myntujógúrt og hrærið vel, kælið.
Hitið pönnu með olíu eða smjöri og steikið bollurnar í ca. 5.mín.
Blandið rifna parmesanostinum saman við hrísgrjónin og smakkið til með salti og pipar.
Berið fram með risotto og myntujógúrt.